Beaufort-kvarðinn
Beaufort-kvarðinn eða vindstigakvarðinn er mælikvarði á vindstyrk þar sem vindhraði er flokkaður í 12 vindstig. Kvarðinn var hannaður árið 1806 af Francis Beaufort, breskum sjóliðsforingja og vindstigin voru skilgreind út frá sjólagi. Upprunalegi kvarðinn miðaðist ekki við vindhraða heldur aðstæður á sjó miðað við seglskútur, allt frá „rétt nægilegt til að stýra“ að „ekkert segl getur staðist“.
Kvarðinn var aðlagaður aðstæðum á landi frá því á 6. áratug 19. aldar og vindstigin bundin við snúninga á vindmæli. Hlutfallið milli vindstiga og snúninga var þó ekki staðlað fyrr en 1923 og mælikvarðanum var breytt lítillega síðar til að hann hentaði veðurfræðingum betur. Í dag eru hvirfilvindar stundum mældir samkvæmt kvarðanum með vindstig 12-16.
Áður var algengast að nota vindstig í veðurspám, en Veðurstofa Íslands gefur nú vindhraða í metrum á sekúndu (m/s).
Vindstig | Vindhraði (hnútar) | Vindhraði (m/s) | Vindhraði (mi/klst) | Meðalvindhraði (m/s) | Heiti | Ölduhæð (m) | Sjólag | Aðstæður á landi | Mynd |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | <0,2 | 0 | 0,2 | Logn | 0 | Lygnt. | Rólegt. | |
1 | 1-3 | 0,3-1,5 | 1-3 | 1,1 | Andvari | 0,1 | Gárur. | Vindur hreyfir reyk. | |
2 | 4-6 | 1,6-3,3 | 4-7 | 2,5 | Kul | 0,3 | Litlar smáöldur. | Vindur finnst á húð. Lauf skrjáfa. | |
3 | 7-10 | 3,4-5,4 | 8-12 | 4,7 | Gola | 0,6 | Stórar smáöldur. | Lauf og smágreinar slást til. | |
4 | 11-16 | 5,5-7,9 | 13-18 | 6,7 | Stinningsgola | 1,0 | Litlar öldur. | Ryk og laus pappír fýkur til. Litlar greinar hreyfast. | |
5 | 17-21 | 8,0-10,7 | 19-24 | 9,7 | Kaldi | 2,0 | Miðlungsstórar, langar öldur. Dálítið löður og úði. | Minni tré svigna. | |
6 | 22-27 | 10,8-13,8 | 25-31 | 12,2 | Stinningskaldi | 3,0 | Stórar hvítfyssandi öldur og úði. | Stórar greinar hreyfast. Erfitt að nota regnhlíf. | |
7 | 28-33 | 13,9-17,1 | 32-38 | 15,6 | Allhvasst | 4,0 | Sjór hrannast upp og löðrið myndar rákir. | Heil tré hreyfast. Erfitt að ganga móti vindi. | |
8 | 34-40 | 17,2-20,7 | 39-46 | 18,9 | Hvassviðri | 5,5 | Nokkuð háar hvítfyssandi öldur og særok. Löðurrákir. | Sprek brotna af trjám, Vindurinn tekur í bíla á ferð. | |
9 | 41-47 | 20,8-24,4 | 47-54 | 22,5 | Stormur | 7,0 | Háar öldur með þéttu löðri. Ölduhryggir hvolfast. Mikið særok. | Minni skemmdir á mannvirkjum. | |
10 | 48-55 | 24,5-28,4 | 55-63 | 26,7 | Rok | 9,0 | Mjög háar öldur. Yfirborð sjávar er hvítt og haugasjór. Skyggni minnkar. | Tré rifna upp. Töluverðar skemmdir á mannvirkjum. | |
11 | 56-63 | 28,5-32,6 | 64-72 | 30,8 | Ofsaveður | 11,5 | Gríðarlega stórar öldur. | Almennar skemmdir á mannvirkjum. | |
12 | >63 | >32,7 | >72 | Á ekki við | Fárviðri | 14+ | Risaöldur. Loftið fyllist af löðri og úða. Hafið er alveg hvítt. Mjög lítið skyggni | Miklar almennar skemmdir á mannvirkjum. |