Clojure
Útlit
Clojure (samhljóma enska orðinu closure, „lokun“) er nýleg Lisp-mállýska búin til af Rich Hickey sem hvetur til fallaforritunar og einfaldar fjölþráðavinnslu. Clojure keyrir á Java-sýndarvélinni.
Clojure er sammynda[1] og hefur öflugt fjölvakerfi sem gerir forriturum kleyft að breyta málskipun málsins og að skrifa forrit sem búa til önnur, jafnvel flóknari, forrit.[2]
Málskipan
[breyta | breyta frumkóða]Hér táknar örin ⇒ GILDI að síðasta segð skili GILDI. Prentar „Halló, heimur!“:
(println "Halló, heimur!")
;; ⇒ nil
Leggur saman tvo og tvo og skilar gildinu:
(+ 2 2)
;; ⇒ 4
Skilgreinir fall sem hefur tölu upp í annað veldi:
(defn tvíveldi [tala]
(* tala tala))
;; ⇒ #'user/tvíveldi
Hefur 9 og talnalista upp í annað veldi með fallinu sem skilgreint var að ofan:
(tvíveldi 9)
;; ⇒ 81
(map tvíveldi (list 1 2 3 4 5))
;; ⇒ (1 4 9 16 25)
Myndrænn gluggi sem birtir “Halló, heimur!” með Swing-forritasafninu í Java:
(javax.swing.JOptionPane/showMessageDialog nil "Halló, heimur!")
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Orð búin til af höfundi.
- ↑ „Er hægt að búa til tölvur sem læra, til dæmis með því að forrita sig sjálfar?“. Vísindavefurinn.