1710
Útlit
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1710 (MDCCX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Pétur Bjarnason í Tjaldanesi í Saurbæ dæmdur í sekt fyrir að hafa grafið í leiði í kirkjugarði til að ná í tönn til að leggja við tönn konu sinnar, sem þjáðist af óþolandi tannpínu.
- Þorleifur Arason varð skólameistari í Skálholti.
Fædd
- 3. október - Snorri Björnsson, prestur á Húsafelli (d. 1803).
Dáin
- 13. júní - Björn Þorleifsson biskup á Hólum (f. 1663).
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 28. febrúar - Her Svía undir stjórn Magnus Stenbock vinnur vann sigur á innrásarher Dana í orrustunni við Helsingjaborg.
- 10. apríl - Fyrstu höfundarréttarlögin, kennd við Önnu drottningu, gengu í gildi í Bretlandi.
Fædd
- 15. febrúar - Loðvík 15. Frakkakonungur (d. 1774).
- 26. apríl - Thomas Reid, skoskur heimspekingur (d. 1796).
- 14. maí - Adólf Friðrik Svíakonungur (d. 1771).
- 20. september - Thomas Simpson, breskur stærðfræðingur (d. 1761).
- 10. nóvember - Adam Gottlob Moltke, danskur stjórnmálamaður (d. 1792).
Dáin
- 7. júní - Louise de La Vallière, hjákona Loðvíks 14. (f. 1644).
- 19. september - Ole Rømer, danskur stjörnufræðingur (f. 1644).