Olaf Olsen
Útlit
Olaf Heymann Olsen (7. júní 1928 – 17. nóvember 2015) var danskur fornleifafræðingur og forstöðumaður Danska þjóðminjasafnsins frá 1981 til 1995. Hann skrifaði doktorsritgerð um hof og hörga þar sem hann færði rök gegn því að sérstök hof til trúarathafna hefðu verið reglan á Víkingaöld, og að blót hefðu aðallega farið fram á bæjum höfðingja. Fornleifarannsóknir hans snerust aðallega um Víkingaöldina og hann átti þátt í að stýra uppgröftum á Skuldelev-skipunum í Hróarskeldufirði 1962, og rannsakaði hringborgirnar Aggersborg, Trelleborg, Fyrkat og Nonnebakken.